HYDRA SUMMUM ANDLITSMEÐFERÐ
Rík af hýalúronsýru sem þéttir, sléttir og gefur húðinni kröftugan raka.
Meðferðin er gerð í 4 meginskrefum:
HYDRA SUMMUM DJÚPHREINSIR
Djúphreinsirinn undirbýr húðina fyrir andlitsmeðferðina með því að auka innsíun og endurnýjun húðar með því að fjarlægja dauðar yfirborðsfrumur.
Húðin verður áferðarfallegri og fær bjartari ásýnd.
HYDRA SUMMUM ÞYKKNI
Hydra Summum þykknin inniheldur háan styrk af hýalúronsýru, sem hjálpar við að fylla í fínar línur. Ekki á að þrífa vöruna af. Þykknin örvar yfirhúð og myndar varnarfilmu fyrir þéttari, fullkomlega rakamettaða og silkimjúka húð.
HYDRA SUMMUM NUDDKREM
Fyrst eru nuddaðar sogæðaörvandi strokur sem hjálpa til við úrgangsefnalosun, þetta er gert til að losa stíflur og endurmóta andlit. Svo eru kröftugar nuddhreyfingar sem slétta, endurheimta þéttleika og ljóma í húðinni.
HYDRA SUMMUM MASKI
Hydra Summum andlitsmaskinn er frískandi og kælandi og veitir mikinn og góðan raka. Maskinn inniheldur:
Kröftug rakagefandi innihaldsefni, hydralogic efnasamband og hýalúronsýru sem einnig þéttir og sléttir húðina.
Acticalm sem mýkir þurra húðina og styrkir varnarfilmu hennar. Dregur úr óþægindartilfinningu, bólgueyðandi, rakagefandi og endurnýjandi.
MARKHÓPUR
Fyrir alla:
- Sem vilja aukinn þéttleika í húðinni og draga úr aldurseinkennum (hrukkum og fínum línum).
- Sem vilja endurheimta góðan raka og mýkt húðar.