AGE SIGNES REVERSE

Meðferðin dregur úr fínum línum, brúnum blettum og veitir fallegan ljóma. Húðin verður stinnari, unglegri og rakamettuð.

Andlitsmeðferðin einblínir á alla þá staði sem einkenni aldurs koma fyrst fram: Andlit, háls, bringa og handarbök.

Með aldrinum hægir á hormónaframleiðslu og frumustarfseminni. Með hægari framleiðslu kollagens og elastíns verða öldrunareinkenni húðar sjáanlegri. Umhverfisþættir hafa einnig áhrif á öldrun t.d. sól, mengun, streita, óheilbrigt líferni o.f.l. Í kjölfar hægari endurnýjunar teygjuþráða húðar fara fínar línur að myndast í andliti, kringum munn og augu. Þær dýpka síðan, verða sjáanlegri. Með hækkandi aldri minnkar einnig raki húðar.

Age SIGNeS REVERSE andlitsmeðferðin dregur úr aldurseinkennum húðar og tryggir langvarandi árangur, þökk sé lykilinnihaldsefnisins ANTI-AGEING IMMUNITY sem veitir kröftuga virkni gegn aldurshvetjandi þáttum húðar, bætir frumustarfsemi og hvetur til nýmyndun stoðvefja leðurhúðar, verndar varnarfrumur húðar (langerhansfrumur) og þar með ónæmikerfi hennar og heilbrigði.

Meðferðin (50 mín):

  • Anti-Ageing djúphreinsir: Endurnýjun húðar. Fjarlægir dauðar húðfrumur og dregur úr fínum línum.
  • Anti-Ageing Immune serum: Veitir kröftuga virkni gegn aldurshvetjandi þáttum húðar, bætir frumustarfsemi og hvetur til nýmyndun stoðvefja leðurhúðar, verndar varnarfrumur húðar (langerhansfrumur) og þar með ónæmikerfi hennar og heilbrigði. Dregur úr brúnum blettum og örvar kollagenmyndun.
  • Anti-Ageing nudd (Á andlit, háls, bringu og handarbök): Er stinnandi fyrir húðina.
  • Anti-Ageing maski (Á andlit, háls, bringu og handarbök: Dregur úr fínum línum, bætir frumustarfsemi, eykur raka og dregur úr brúnum blettum.